10.5.2006 | 13:15
Tekur Sunns þátt í geðveikinni?
Er til eitthvað sem heitir vormanía? Svona til að koma í staðinn fyrir skammdegisþunglyndið. Ég er nefninlega farin að haga mér undarlega. Það nýjasta í þessari undarlegu hegðun minni er að eftir miklar yfirlýsingar um að slíkt sé bara masókismi/peningasóun (eftir því hvert framhaldið er) af alvarlegustu gerð og að ég ætli sko aldrei aftur að taka þátt í slíkum athöfnum fékk ég allt í einu þá flugu í höfuðið áðan að kaupa mér líkamsræktarkort. Þessi fluga kom fyrir svona klukkutíma og hún er ennþá hérna. Ég veit ekki hvort er sorglegra að lesa, mig í maníu eða þunglyndi!
Svo enn einu sinni að frumlegheitum mötuneytisins....í hvaða heimi blandar maður saman eplum, vínberjum og camenbert osti í skál og ber fram sem mat?
Athugasemdir
Ég virðist refresha síðuna þína í sífellu...verð bara að játa á mig þá geðsýki, þú líka sagðist vera að fara að blogga meira.
Það virkar fínt á mig, þegar líkamsræktarkortahugmyndin nær tökum á mér (sem gerist blessunarlega mjöööög sjaldan), að hugsa um 6 mánuðina í K-klúbbi Baðhússins ...það hefði mátt gera ýmislegt annað fyrir þann péning en að eyða honum í líkamsrækt sem ég hefði frekar sagað af mér fótinn en að mæta í :P
Huldus líkamsræktarfrík (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 13:32
já ég einmitt hugsaði um baðhúsið...það dugði ekki til...sé til hvernig ég verð eftir nokkra tíma.
Sunna, 10.5.2006 kl. 13:37
usss þú kemur bara með okkur Heiðu í laugar:) Heiða var einmitt að kaupa sér kort:)
Kveðja Sandra
Sandra dí (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 13:58
sko...þegar ég er á barmi þess að gera fjárhagsleg mistök sem skuldbinda mig til sjálfspíngingar, þá má ég nú ekki við svona hvatningu sandra...það gæti ýtt mér yfir brúnina...
en jú ef ég verð ennþá geðveik þegar ég kem í bæinn kem ég í laugar.
Sunna, 10.5.2006 kl. 14:48
humm en ef við Heiða hvetjum þig til dáðar þá kanski bara tekst okkur að draga þig með hehe
Sandra dí (IP-tala skráð) 10.5.2006 kl. 22:21
Hlustaðu á Huldusinn Sunnus...þú veist þetta býður bara upp á sjálfsmorðshugsanir eftir X tíma talinn í vikum.
Hálft ár í Baðhúsinu og hálft kíló í mínus vs sófinn, video, línuskautar og hálft kíló í plús??
Djöfull er mér annt um heilsu þína btw...hehe
Huldus (IP-tala skráð) 11.5.2006 kl. 09:22
hmm...ég er að spá í að ákveða ráða þessu bara sjálf...
Sunna, 11.5.2006 kl. 09:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.