4.8.2006 | 10:41
I'm a dirty slut
Dirty Slutty Hooker Money kom í hús í gær við mikinn fögnuð minn. Alveg hinn fínasti diskur hér á ferð þó hann verði nú örugglega ekki í spilun neitt rosalega lengi hjá mér. En það skiptir ekki máli því bara nafnið á honum er nóg til að gera hann peninganna virði. Til þess að taka þetta almennilega skipti ég líka út hringitóninum í símanum mínum og Queen, sem hefur riðið rækjum í símanum mínum frá því ég eignaðist hann, fékk að víkja fyrir Dr. Mister & Mr. Handsome.
Svo sit ég hérna í vinnunni í rólegheitum að einbeita mér að því að þrauka enn einn viðbjóðsleiðinlegan dag þegar taskan mín sem er hérna á borðinu við hliðina á mér byrjar að öskra "I'm a dirty slut, I like to lick a lot!" Veit ekki alveg hvernig þetta er að koma út fyrir mig...ætti kannski að hafa hann bara á silent í vinnunni, fjölskylduboðum og öðrum stöðum þar sem fólk hefur ekki eins þroskaðan og djúpan húmor og ég, Doktorinn og Misterinn.
Athugasemdir
Ef að fólk tekur síma alvarlega sem segist vera dirty slut, á ekki að taka það fólk alvarlega. Hver trúir því að sími sé dirty slut anyways?
Villi Asgeirsson, 4.8.2006 kl. 10:50
þú hefur greinilega ekki hitt símann minn...
En eins og svo oft áður er mér nok sama hvað fólk heldur....og er ekki enn búin að setja á silent.
Sunna, 4.8.2006 kl. 11:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.