16.4.2006 | 22:27
Gleðilega Páska
Hvað er málið með þennan páskalærdóm alltaf hreint? Það virðist ekki skipta neinu máli hvað hann á að yfirtaka fríið samkvæmt öllum plönum, það bara fer aldrei neitt fyrir honum. Ég virðist bara vera búin að gera allt annað en að læra. Deep dish var auðvitað bara ógeðslega skemmtilegt kvöld og svo er ég búin að fara í matarboð upp í sveit, fara í pool þar sem ég stóð mig nú mun betur en vanalega en það var eflaust af því að andstæðingurinn þóttist vera einhentur....en hann vann nú samt naumlega, fá fólk í heimsókn, fara í heimsókn, fara á kaffihús, fleyta kellingar á maganum og olnboganum á Ingólfstorgi, lesa lélegan reifara og núna seinast búin að éta mér til óbóta af hamborgarhrygg og mömmubakaðri súkkulaðiköku og hlæja svo alveg heilan helling að byrjuninni á Bridget Jones...og er að spá í að fara að hlæja bara að restinni. En djöfull fíla ég svona fimm daga helgar...meira svona!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.